Flugeskum!
Myndir
08.03.2007 22:03:57 / jensongud

hættur!

bara að láta fólk vita að ég er hættur með þessa síðu! nota hana til að fara inná aðrar síður en er með mæspeis ef fólk vill tala við mig www.myspace.com/jennigud.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 15:08:52 / jensongud

takk

Hæhæ ætlaði bara að láta ykkur vita að ég er í vinnunni ef þið þurfið nauðsynlega að ná sambandi við mig! 

P.S. Vill þakka öllum fyrir blóminn og gjafirnar:haha:

ætla að halda áfram að vinna. bæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 18:55:44 / jensongud

Susan Sarandon

Af hverju þurfti að snjóa aftur??

ég sem var næstum búin að þvo bílinn minn í gær shit!

Áfram Latibær


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 20:25:05 / jensongud

Hæhæ

Hæ vegna mikilar eftirspurnar frá fólki og aðdáendum þá hef ég ákveðið að koma með hérna eina góða færslu og kannski byrja að venja mig á það sona sé til, mun bara fara eftir því hversu mörg komment ég mun fá hérna:!:

En ja annars er bara allt gott að fara að kjéppanum frá því að seinast ég skrifaði þá hefur margt og mikið skéð til dæmis ég byrjaði í Viðskiptafræði í HÍ, fyllerí, lyfta, ljós, körfuboltaæfing, klipping, jólapróf, aftur klipping, jólahlaðborð, náði þeim merka áfanga að drekka ekki í 5 vikur, jólinn komu, áramótinn komu, fékk úr prófunum( kom ekkert alltof vel út :cry:), ákvað að minnka við mig í skólanum og er einungis í 2 fögum og er að fara byrja vinna fulla vinnu með því a næstu dögum en þetta var ég bara að ákveða núna fyrir 2 dögum ásamt því að ég er að fara sækja um á Laugavatni fyrir næsta vetur og ætla að byrja í sundi. En þangað til ætla ég bara að vera ferskur á kantinum og leitast eftir nýjum ævintýrum og er sú hugmynd í lofti að fara kannski bara til Danmerkur að vinna og kannski æfa handbolta fyrst þeir eru sona góðir! Eða síðan kannski endar mar bara í Ástralíu á Ramsey street það er víst að losna hús þar Dr. Karl er víst að spá í að flytja og gerast trúbador eftir allt saman sem hann og Susan hafa gengið í gengnum og syngja um það og börninn sín sem eru alls staðar í heiminum Malcolm sem dó, Libbie sem flutti og Billy sem varð læknir eins og pabbi sinn og byrjaði að vinna hjá Dr. House!

En allavegna er kominn langt þarna út fyrir efnið en það skiptir svo sem engu máli er farinn á æfingu hjá KR-Bumbunni sýna þessum gömlingum hvernig þetta er gert!

bæbæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 14:52:16 / jensongud

Myndir

Heyriði það er kominn tengill á myndasíðu sem mar var að stofna hérna til hliðar! og síðan ný könnun:!:

Jenz-inn


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 14:45:42 / jensongud

eitt gott blogg!

jójó its been a long time að koma með hérna nokkrar setningar fyrst ég er ekki búin að segja neitt síðan um verslunarmannahelgina;)

og það var bara þetta hér!

já 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 23:47:06 / jensongud

Leitinn að Dúa Landmark!

ja sssusss og sveisvei jeddúddamía hvað það er langt síðan ég hef! ég segi nú bara þó líði ár og öld og samt ég alltaf aftur eins og Bjöggi eða Sigga Beinteins sögðu man ekki alveg rugla þeim alltaf saman.8|

en já er að spá í að hafa þetta sona mánaðlegt dæmi enda er akkurat mánuður liðinn síðan mar lagði einhverja vinnu í þessa síðu, þessa fokk góðu síðu eða ein með öllu eins og ég kýs að kalla þessa elsku!

en jammmm langt jam þá er margt búið að ské færiskir dagar voru um daginn og ég lenti ekki fyrir bíl í þetta skiptið sjíbbi! og ég varð tuttuguogeinsársgamall snilld, og síðan margt annað sem ég nenni ekki að telja upp fór til eyja núna um seinust helgi í 3þa skiptið og það var bara magna-i-fico þótt að það hafi verið rigning og rok ég held meira að segja að ég hefði ekki viljað hafa það neitt öðruvísi, en það var svo geggjað þægilegt að vera bara á hóteli smá fancy skoh! en annars það sem stóð sona uppúr þessari ferð var Dr. Spook (ahahah), Þorsteinn Guðmundsson, ganga mín og kobba upp á eldfjallið sem við föttuðum bara að væri eldfjall þegar við komum niður ahaha steiktir en við fengum okkur smá bjór uppá því í þokunni og geðveika rokinnu algjör snilld og eftir að við héldum niður þá fórum við í einhvern garð hjá einhverju fólki og fengum að skella okkur á trapólínið hjá þeim smat án þess að fá leyfi en það var bara gaman:lol:

fleira sem stóð upp úr var náttla Bubba alltaf góður og náttla Árni þótt hann sé ógeðslega leiðinlegur og síðan náttla þegar mar fékk sér lundann, og þegar ég dó á hótelinu á sunnudeginum að klæða mig úr!!

en jamm nóg í bili Jenni er laus úr jailinu kveður!!

sælar


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 18:47:08 / jensongud

21

jæjaja þá er Jenni bara að fara verða 21 árs gamall á morgun sjíbbi!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 23:37:37 / jensongud

90210

Ég verð bara að lýsa yfir ánægju minni með skjá einn að hafa náð byrjað að sýna beverly hills 90210 fokking snilldar þætti! það verður leggið yfir þeim í sumar ójá8)

og ég verð einnig að lýsa yfir óánægju minni á því að sýn hafi fengið sýningarréttinn á HM! erttu ekki að grínast þetta er sona hlutur sem á alltaf að vera á RÚV! HM og EM er sona eins og ólympíuleikarnir sýna þetta helvíti!!  leyfa öllum landanum að fylgjast með, en mar verður bara að vera duglegur að kíkja í heimsókn til fólks sem er með sýn þegar það eru leikir;)  

Bara koma með þessa punkta til að láta fólk vita að mar er enn hérna.....................og hey hérna audda eiga allir að koma vestur til Ólafsvíkur höfuðborgar Snæfellsbæjar fyrstu helgina í júlí það verður magnað!!! mar hefur síðan heyrt að Páll Óskar komi og Menn í svörtu og spila í félagsheimilinu:haha:

Jenninn Out!!!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 17:18:41 / jensongud

Kominn á klakann!!

Halló halló gott fólk þá er mar mættur á klakann aftur!!!! Síjbbí en já mar mætti núna klukkan 3 á sona góðum tíma líka;) en kvöldið mun byrja með frábæri máltíð frá henni múttu minni og síðan er allt eftir það bara spurningamerki? hva er máltíð í dag í bænum? mar veit ekkert komnir nokkrir mánuðir síðan mar var þar seinnast. En já allir sem vilja meiga bjalla á kallinn og heyra í manni en það verða nokkrir bjórar opnaðir enda var keypt 2 kippur af víkingi og Opal og Tópas í ríkinu;) látiði heyra í ykkur mar er kominn með gamla númerið aftur..

Heyri í ykkur!

J-man


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 15:58:01 / jensongud

hver er framtíðin?

Jæja gott fólk þá er víst kominn sá tími í lífi manns að mar þarf að fara að ákveða hvað maður ætlar að gera við framtíð sína!!(verða gamall 30tugs aldur nálgast!) En eftir mikla umhugsun þá hef ég ekki komist að niðurstöðu og ætla að leyfa ykkur vinum mínum, fjölskyldu, ættingjum, félögum, kunningjum, ungir sem aldnir, karlkyns, kvenkyns, hvítir, svartir, gulir, rauðir, bláir(blue man group), stórir, litlir, feitir, mjór, kúlulagaðir og ásamt aðdáendum mínum;) að kjósa og hjálpa kallinum að komast að niðurstöðunni. En könnun birtist hér til hliðar og eru ýmsir kostir í boði.

Þakka ykkur

Jenninn kveður


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 12:30:51 / jensongud

Pæling

Smá pæling djöfull er tíminn fljótur að líða hérna í Danmörku mar er nú búinn að vera hér í 19 vikur og það eru aðeins 6 dagar eftir og mætti segja það að tíminn sé fljótari að líða hér enn á klakanum, eitt sem styður það er að tíminn hér er alltaf 2 tímum á undan klakanum.

En allavega 6 dagar í kónginn!

Sjáumst..... 


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 13:44:26 / jensongud

Slúður helgarinnar!

Heyrst hefur að David Beckham hafi sést labba um götur Malmö núna seinasta föstudag, en voru nokkrar sænskar táningsstúlkur sem báru kennsla á kappann!!:|


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 20:18:40 / jensongud

Megavika seinasta vika! Og þessi byrjar helvíti vel!

Já seinasta vika var geðveik og það var alltof mikið til að gera til að fara að blogga þannig að ég segi bara allt í sona stuttum orðum.

1.maí stór útihátíð í Köben, Loop Troop tónleikar, fórum í útilegu með friluftsliv in the wild( fórum í leiki, klifrað, gert skjól til að sofa í, gert varðeld og sánu, eldað og gist), fórum síðan til Grundvigs Hojskole( sem Lára er í) og spiluðum við þá fótboltaleik 11 á móti 11 en því miður þá töpuðum við 4-1L , smá partý í skólanum á föstudaginn, vinna á laugardaginn og síðan DJ Margeir á Vega um kvöldið og það var helvíti mikið stuð það var svo mikil stemming í gangi að Kári Viðars kom alla leið frá klakanum á svæðið!

 

 



Síðan byrjaði þessi vika á klikkuðu veðri að mar lá bara í sólbaði á bryggjunni og síðan var farið til Kathrine kennara ljósmyndahópurinn minn ásamt Asyl hópnum og grilluðum okkur feita(samt smá litlir) hammara. Síðan var tekið smá partý um kvöldiðJ

Og svo daginn í dag þá var farið í friluftsliv kl.8 um morguninn og haldið til Helsingor þar sem það var farið í smá bátsferð í kringum höfnina, og gátum við leigt okkur veiðistangir og audda gerði mar það og veiddi 10 fiska....hefði samt vilja fá fleiriL

Eftir þetta þá var haldið síðan upp í skóla þar sem við strákarnir fórum í fótbolta á táslunum í þessum hita en einhvers staðar heyrði ég að það hefði verið á milli 30-35 stiga hiti.....mar er síðan ekki frá því að mar hafi fengið alveg helvíti mikið tan!

 

 



En síðan er það bara Tívolíið á morgun! Sjíbbí!!!

 

 



Seinna....


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 11:56:05 / jensongud

Þetta er nú meira draslið

Afsakið það áttu að fylgja myndir með seinustu færlsu enn það kom bara ekkert:( og ég kann ekkert á þennan skít!! Þið kíkjið bara á myndirnar hjá Beggu og Einari.

Yfir


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3